Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Eldingu slær niður í Eiffelturninn árið 1902

Þessi mynd sem sýnir eldingu slá niður í Eiffelturninn í París var tekin í stormi hinn þriðja júní 1902. Hún mun vera ein fyrsta ljósmyndin sem tekin var af eldingu í… [Lesa meira]

Stonehenge árið 1867

Hið eldforna enska mannvirki Stonehenge árið 1867, þegar ljósmyndatæknin var ný. Hún breytti starfi fornleifafræðinga sem gátu með tilkomu hennar rannsakað fornar byggingar og gripi á skrifstofunni í stað þess að þurfa alltaf að vera á… [Lesa meira]

Jökull í myrkrinu, Suðurskautslandið 1911

Barne-jökull er brattur jökull á Ross-eyju við Suðurskautslandið. Myndina tók Herbert George Ponting árið 1911, en hann var meðlimur í leiðangri Scotts.

 

Skoðið fleiri stórkostlegar myndir frá Suðurskautslandinu… [Lesa meira]

Þórður Guðjohnsen og fjölskylda

Þórður Guðjohnsen með börnum sínum, á Húsavík um árið 1900. Myndina tók breski ljósmyndarinn Frederick W.W. Howell, sem ferðaðist til Íslands og Færeyja um aldamótin. (Cornell University… [Lesa meira]

Rússíbani í boði þyngdaraflsins

Prúðbúið fólk um borð í forrennara rússíbanans, sem var einfaldlega vagn á teinum sem var ýtt niður fjallshlíð Mount Tamalpais í Kaliforníu. Fyrir framan vagnstjórann eru tvær járnstangir sem settu bremsurnar á – og til hliðar við hann er skondin bjalla í yfirstærð (Mill Valley Public… [Lesa meira]

Blind og heyrnarlaus kona árið 1855

Laura Brigdman frá Bandaríkjunum, mynd frá 1855. Hún missti bæði sjón og heyrn um tveggja ára aldur og varð einn fyrsti blindi og heyrnarlausi einstaklingurinn sem lærði að nota táknmál, fimmtíu árum áður en hin fræga Helen Keller fékk samskonar kennslu. Móðir Helen Keller las skrif breska rithöfundarins Charles Dickens um Lauru Brigdman sem hvatti hana til að finna kennara… [Lesa meira]

Fidel Castro á veiðum í Sovétríkjunum

Hér sjáum við dúðaðan Fidel Castro á veiðum í Sovétríkjunum veturinn… [Lesa meira]

Ástralar í lautarferð

Ástralskir menn úti í náttúrunni með tóbakspípur og bjór. Lane Cove í Nýja Suður-Wales, 1896. (Powerhouse Museum… [Lesa meira]

Hjálmar Hjálmarson í Persíu

Hershöfðinginn Hjalmar O. Hjalmarson fór fyrir sænskri hersveit sem sá um þjóðvegagæslu í Persíu á öðrum áratug 20. aldar. Mynd frá árinu 1911. (Wikimedia… [Lesa meira]

Líbýskar Gyðingakonur

Líbýskar Gyðingakonur í þjóðbúningum. Óþekkt ártal, snemma á 20.… [Lesa meira]

Rússakeisari og Bretakonungur nauðalíkir náfrændur

Hér sjáum við systrasynina Nikulás annan Rússakeisara (1868-1918) og Georg fimmta Bretakonung (1865-1936) á samkomu í Berlín árið… [Lesa meira]

Geirfinnur Einarsson

Um klukkan 22.30 hinn 19. nóvember 1974, fyrir 37 árum síðan í dag, fór Geirfinnur Einarsson frá heimili sínu, Brekkubraut 15 í Keflavík. Ekkert hefur spurst til hans síðan.

 

„Það eru áreiðanlega einhverjir enn meðal okkar lifenda sem vita nákvæmlega hvað varð um Geirfinn. Ég er búinn að fara yfir þetta aftur og aftur og reyna eitt og annað til þess að… [Lesa meira]