Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Borðeyri árið 1883

Ljósmynd af Borðeyri við Hrútafjörð á Ströndum frá 1883. Sigfús Eymundsson tók myndina. Landnámsmaðurinn Ingimundur gamli gaf eyrinni nafnið en hann fann á henni nýrekið viðarborð eftir því sem fram kemur í Vatnsdælasögu:

 

„Hann fór norður um sumarið í landaleitun og fór upp Norðurárdal og kom ofan í eyðifjörð einn. Og um daginn er þeir fóru með þeim firði þá hlupu… [Lesa meira]

Belgískur mjólkursali ásamt hundi

Hvutta virðist í léttu rúmi liggja að vera látinn aðstoða við störf mjólkursala í Belgíu um þar seinustu aldamót (New York Public… [Lesa meira]

A case of „Too Much Yon Yonson“

Í laginu I Got Another Man To Change My Name (Swedish Dialect Song) syngur Maude Allison um það hvernig það er að vera eiginkona skógarhöggmanns af sænskum uppruna. Söngbókin er frá 1899 (New York Public… [Lesa meira]

Cléo de Mérode

Franska leikkonan og dansarinn Cléo de Mérode (1875-1966), á ljósmynd Félix Nadar árið… [Lesa meira]

Japanskir slökkviliðsmenn

Japanskir slökkviliðsmenn sýna hér fimi sína í háum stigum. Þessi æfing fór fram í kringum aldamótin 1900 (New York Public… [Lesa meira]

Panji prins berst við stríðsmann

Prinsinn Panji er kunn þjóðsagnapersóna á eyjunni Java í Indónesíu. Hér hefur verið sett á svið barátta Panji (á vinstri hönd) við buginesískan stríðsmann. Surakarta, 1931 (New York Public… [Lesa meira]

Bókavagn hinna sjúku

Bókavagn almenningsbókasafnsins í Los Angeles á sjúkrahúsi þar í borg árið 1928. (Wikimedia… [Lesa meira]

Stríðstúbur Híróhítós

Híróhító Japanskeisari virðir hér fyrir sér risavaxnar stríðstúbur japanska hersins, skömmu fyrir seinni heimsstyrjöldina. Því miður eru „stríðstúburnar“ ekki eiginleg hljóðfæri heldur forverar ratsjárinnar —lúðrarnir hlustuðu eftir vélarnið úr flugvélum sem… [Lesa meira]

Samuel Reshevsky á móti rest

Bandaríski skáksnillingurinn Samuel Reshevsky keppir í fjöltefli árið 1919, aðeins átta ára að aldri. Hann var frægt undrabarn í Bandaríkjunum og síðar stórmeistari og sterkur keppandi á heimsmeistaramótum í skák. (Wikimedia… [Lesa meira]

Þýskur laumufarþegi árið 1911

Þýskur maður sem laumaði sér með skipi til Ellis Island í New York sem var móttökustöð landnema í Bandaríkjunum. Myndina tók Augustus F. Sherman árið 1911. (New York Public… [Lesa meira]

Hermaður og sofandi köttur, 1915

Francis Edmund Bilton, óbreyttur hermaður í fimmta herfylki ástralska hersins, ásamt ónefndnum ketti, árið 1915. Myndin er tekin í bækistöðvum fylkisins í Melbourne. Fimmta herfylkið í fyrri heimsstyrjöld barðist meðal annars í hinni blóðugu orrustu við Gallipoli, þegar her Ottóman-Tyrkja sigraði Bandamenn en rúm hálf milljón manna lá í valnum. (Australian War Memorial… [Lesa meira]

Tvíburaturnarnir árið 1973

Tvíburaturnar World Trade Center í New York stuttu eftir að þeir voru byggðir. Myndin er tekin í maí 1973. (U.S. National… [Lesa meira]