Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Norskir töffarar árið 1889

Sænski ljósmyndarinn Axel Lindahl fann þessa eitursvölu hjólareiðagarpa í ægifögrum dal í Sogn og Firðafylki í Noregi árið… [Lesa meira]

Bandarísk hryssa í „Uppboði skrattans“

Eliza Blasina frá New York fer með hlutverk hryssu í leikritinu „The Devil’s Auction“ eða „Uppboði skrattans“. Ljósmyndin var tekin árið 1867. Myndin er fengin úr ljósmyndasafni félagsfræðingsins Charles H. McCaghy sem rannsakað hefur furðusýningar í Bandaríkjunum um aldamótin… [Lesa meira]

Einstein í Gautaborg

Albert Einstein heldur erindi í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg í Svíþjóð árið 1923. Skemmtigarðurinn var opnaður það ár í tilefni af 300 ára afmæli Gautaborgar. Í áhorfendaskaranum situr Gústaf V.… [Lesa meira]

Gertrude Käsebier

Gertrude Käsebier var meðal áhrifamestu ljósmyndurum Bandaríkjanna á fyrri hluta 20. aldar. Hér er hún við störf ásamt óþekktum manni, árið 1905. (Library of… [Lesa meira]

London í lit árið 1949

Shaftesburygata í London árið 1949. Myndina tók Chalmers Butterfield með… [Lesa meira]

Við Sólheimajökul árið 1910

Magnús Ólafsson tók þessa ljósmynd af mönnum við Sólheimajökul, sem er skriðjökull í Mýrdalsjökli, árið 1910.

 

Jökullinn hefur hopað mikið á einni öld eins og ljósmyndin yst til hægri hér að neðan frá 2010 sýnir glögglega, en hún er tekin á nákvæmlega sama stað. Myndin er skjáskot úr mastersverkefni Bjarka Friis, Late Holocene Glacial History of Sólheimajökull, Southern Iceland.

… [Lesa meira]

Ástralskur fótboltamaður, 1870

Leikmaður í áströlskum fótbolta, um 1870.

 

“Ástralskur fótbolti er íþróttagrein sem, þrátt fyrir nafnið, líkist meira rúgbý eða gelískum fótbolta en eiginlegum fótbolta. Leikurinn fer fram á sporöskjulaga velli (eins og krikketvelli, en þeir eru oft notaðir) og markmiðið er að skora í mörk á sitthvorum enda vallarins. Mörkin eru tvö og hvort fyrir sig er markað af fjórum stöngum, tveimur… [Lesa meira]

Hollandsdrottning á hjóli

Júlíana, drottning Hollands, ferðaðist um á reiðhjóli í heimsókn sinni til vesturfrísnesku eyjarinnar Terschelling, 1967.

 

Júlíana (1909-2004) var drottning Hollands frá 1948 til 1980. Þá afsalaði hún sér völdum og dóttir hennar, Beatrix, tók… [Lesa meira]

Alberto Zorrilla, eiginmaður Sonju

Alberto Zorrilla, argentínskur sundkappi, á forsíðu El Gráfico, íþróttablaðs frá Buenos Aires. Hann varð þjóðhetja í Argentínu þegar hann vann gullverðlaun í 400 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í Amsterdam árið 1928.

 

Eiginkona Albertos var íslenska ævintýrakonan Sonja Benjamínsson de Zorrilla. Lesa má sögu þessara argentínsk-íslensku hjóna í ævisögu Sonju sem Reynir Traustason skráði fyrir nokkrum… [Lesa meira]

Hátíð á munaðarleysingjahæli Gyðinga í Berlín

Börn á Gyðinga-munaðarleysingjahælinu Ahawah í Berlín, uppúr 1930. Þau eru klædd í búninga eftir að hafa haldið upp á hátíðina purim.

 

Forstöðukona munaðarleysingjahælisins, Beate Berger, sá fljótt að börnunum myndi ekki farnast vel í Þýskalandi eftir að Hitler komst til valda. Hún safnaði peningum á laun og árið 1934 ferðaðist hún með rúmlega 100 börn til Palestínu. Nasistar tóku síðan… [Lesa meira]

Lögreglan skýtur mann árið 1923

Skothelt vesti prófað í höfuðborg Bandaríkjanna árið 1923.

 

„W.H. Murphy frá vestaframleiðandanum Protective Garment Corp. stóð í þriggja metra fjarlægð frá lögreglumanninum Charles W. Smith og leyfði lögreglumanninum að skjóta sig í brjóstið með .38 kalibera skammbyssu. Murphy deplaði ekki auga þegar kúlan lenti í vestinu.“

 

 (National Photo… [Lesa meira]

Prúðbúin hjón við Litlu hafmeyjuna í Kaupmannahöfn

Óþekkt hjón stilla sér upp fyrir framan hina frægu styttu af litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn, um 1970. Hjónin eru líklegast Bretar, á siglingu með skemmtiferðaskipi, en myndin er fengin úr myndasafni hins breska National Maritime Museum tileinkað skemmtisiglingum á tuttugustu öld. (National Maritime… [Lesa meira]