Slipshod-systur og hælið

Ljósmynd sveimar um hyldýpi netsins og á að sýna Slipshod-systurnar sem margt fyrir löngu ráku hina hryllilegu heilbrigðisstofnun „The Slipshod Home for Feeble Minded Children“.

Lemúrnum hefur ekki tekist að staðfesta ætterni kvennanna á myndinni en þær eru ansi svalar. … [Lesa meira]

Freyju-Möndlur, Campari og kaktuslús

Hið klassíska íslenska sælgæti, Freyju Möndlur, hefur þann eiginleika að gera tungur neytenda skærbleikar við mikið át. Möndlurnar eru enda bleikar að lit, eða jafnvel djúprauðar (e. crimson). Þessum lit er náð með litarefninu karmín. Þetta sama litarefni er einmitt að finna í ítalska drykknum Campari, bitra líkjörnum sem fólk kann fyrst að meta með hækkandi aldri og aukinni… [Lesa meira]

Myndskreytt japanskt heimskort frá 1932 sýnir Al Capone, Hitler og Gandhi

Myndskreytt japanskt heimskort frá 1932 sýnir goshveri eða eldfjöll á Íslandi, mafíósann Al Capone í Bandaríkjunum, Breta glíma við Gandhi á Indlandi og Hitler og Stalín gnæfa yfir Evrópu.

Smellið hér til að sjá myndina í fullri stærð.

En þarna er líka Paavo Nurmi, langhlaupari, í Finnlandi, japanskir innflytjendur… [Lesa meira]

Fann mynd af Halldóri Laxness á Íslendingadeginum í Los Angeles 1929

Elijah Petzold lærði íslensku í Háskóla Íslands fyrir nokkrum árum. Þegar hann kom heim til Los Angeles skoðaði hann gamla ljósmynd sem móðir hans keypti á bílskúrssölu fyrir 30 árum síðan.

Mömmu hans fannst myndin áhugaverð en skildi ekki áletrunina sem fylgdi.

En eftir dvölina á Íslandi átti Elijah ekki í vandræðum með textann:

Íslendinga dagur — Sycamore Grove… [Lesa meira]

Nútímajóga er afkvæmi „Müllersæfinga“

Jóga er ein vinsælasta gerð líkamsræktar í nútímanum. Milljónir manna um allan heim stunda óteljandi líkamsstellingar sem hressa og liðka bæði líkama og sál. En fyrirbærið jóga – eins og vestrænt fólk þekkir það – á sér furðulega sögu sem er mun nær okkur í tíma en við áttum okkur á. Og mun vestrænni.

Í upphafi tuttugustu… [Lesa meira]

Er hasartryllirinn Snowpiercer framhald af Kalla og sælgætisgerðinni?

Vídjó

Hér færir YouTube-notandinn Rhino Stew sannfærandi rök fyrir fjarstæðukenndri kenningu.

Blóðugi framtíðartryllirinn Snowpiercer frá 2013, eftir suðurkóreska leikstjórann Bong Joon-ho, er framhald af Kalla og sælgætisgerðinni. Að minnsta kosti kvikmyndaútgáfu þessarar sígildu bókar breska rithöfundarins Roald Dahl, Willy Wonka and the Chocolate Factory frá 1972, sem skartaði Gene Wilder… [Lesa meira]