Þau sem skrifa fyrir Lemúrinn eru of ung til að muna eftir Sædýrasafninu í Hafnarfirði, íslenska dýragarðinum sem geymdi ekki bara dýr úr hafinu heldur einnig ljón, apa, ísbirni, kengúrur og aðrar framandi skepnur.

 

Myndbandið hér fyrir neðan, sem sýnir ísbjörn þar árið 1973, kemur okkur því mjög framandlega fyrir sjónir. Svæðið sem þetta stóra dýr hefur virðist mjög lítið og aðstæður almennt mjög lélegar.

 

Eiga lesendur minningar frá safninu? Lesendur eru eindregið hvattir til að skrifa um þær í kommentakerfinu eða á Facebook-síðu Lemúrsins.

 

Lesið líka seinni grein Lemúrsins um Sædýrasafnið: Kengúrurnar sem gleymdust í kulda og trekki í Hafnarfirði.

 

Vídjó

 

Á Wikipediu er stiklað á stóru í sögu safnsins:

 

Sædýrasafnið í Hafnarfirði var dýragarður sem opnaði 8. maí 1969. Það var staðsett í Hafnarfirði sunnan við Hvaleyrarholt gegnt þeim stað þar sem Krýsuvíkuvegur mætir Reykjanesbraut. Upphaflega þróaðist það út frá sýningum á sjávardýrum í sérsmíðuðum fiskabúrum sem Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði stóð fyrir. Brátt bættust við selir, háhyrningar, ísbjörn, ljón og apar, auk íslenskra húsdýra. Jón Kr. Gunnarsson skipstjóri og ritstjóri, var aðalhvatamaður að stofnun safnsins og forstöðumaður þess frá upphafi til enda.

 

Safnið var fjármagnað með aðgangseyri auk tekna sem fengust fyrir að fanga háhyrninga fyrir sædýrasöfn víða um heim. Háhyrningarnir voru þá geymdir í laug í sædýrasafninu áður en þeir voru fluttir erlendis. Þannig var til dæmis háhyrningurinn Keikó fangaður árið 1979. Þessi verslun lagðist af vegna vaxandi gagnrýni hvalaverndunarsamtaka.

 

Safnið var starfrækt til 1987 en lagðist þá af vegna fjárhagsörðugleika. Síðustu dýrin sem þar voru geymd (kengúrur) voru felld árið 1988.

 

Í júlí árið 1984 birtist sorgleg frétt í NT. Ísbjörn hafði drepist í safninu eftir að hafa stigið á glerbrot.

 

NT, júlí 1984

 

Fleiri dagblaðaúrklippur um Sædýrasafnið:

 

Dagblaðið, 1978. (timarit.is)

 

Dv 1986. (timarit.is)

 

Dv 1986. (timarit.is)