Blindur maður með kött í fanginu. Bandarísk dagúerrótýpa frá um 1850. (George Eastman… [Lesa meira]
Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.
Fyrsta ljósmyndin af konu, 1839
Þetta er Dorothy Draper (1807-1901) en hún var systir vísindamannsins Johns Williams Draper sem var frumkvöðull á sviði ljósmyndatækninnar. John tók þessa mynd af Dorothy annað hvort árið 1839 eða 1840 og er hún talin fyrsta ljósmyndin af andliti konu, og í raun ein allra fyrsta portrettmyndin af nokkurri manneskju. Myndin er svokölluð … [Lesa meira]
Maður sem barðist við Waterloo og konan hans
Orrustan við Waterloo, sem háð var 18. júní árið 1815 þar sem Belgía er núna, fór fram áður en ljósmyndatæknin kom til sögunnar. Orrustan markaði endalok Napóleonsstríðanna þegar Frakkar voru bornir ofurliði af herjum Breta og Prússa.
Við höfum engar ljósmyndir af því þegar Napóleon þurfti endanlega að játa sig sigraðan. En hér er ljósmynd frá um 1850 af enskum öldungi sem… [Lesa meira]
Hermenn Áttaþjóðabandalagsins
Svokallað Áttaþjóðabandalag var stofnað árið 1900 til þess að kveða niður Boxarauppreisnina í Kína. Bandalagið sendi 45.000 hermanna lið til Beijing sem batt enda á uppreisnina, og fór svo ránshendi um borgina.
Á þessari mynd hafa hermenn bandalagsins, einn úr hverju herliði, raðað sér upp í snyrtilega stærðarröð. Frá vintri: Bretland, Bandaríkin, Rússland, breska Indland, Þýskaland, Frakkland, Austurríki-Ungverjaland, Ítalía, Japan. (Wikimedia… [Lesa meira]
Tilly Losch
Austurríska dans- og leikkonan Ottilie Ethel Leopoldine „Tilly“ Losch . Ljósmyndina tók E. O. Hoppe árið… [Lesa meira]
Tvær dömur og Páskakanínan
Dularfull mynd úr myndasafni fylkisbókasafnsins í Virginíu í Bandaríkjunum. Tvær prúðbúnar dömur og páskakanína í Richmond, Virginíu, á páskum 1960. (Library of… [Lesa meira]
Sýrlenska gúrkan
Grænmetis- og ávaxtasalar bjóða fram vörur sínar ferðalöngum á lestarstöðinni í Homs í Sýrlandi, í kringum 1910. Hugsanlegur kaupandi í vagndyrunum virðir fyrir sér gúrku.
Gúrkan sem um ræðir er svokölluð armensk gúrka, cucumis… [Lesa meira]
Robin og draugurinn, 1863
Franski ljósmyndarinn Eugène Thiébault tók þessa mynd af brellumeistaranum Henri Robin og draugalegri furðuveru árið… [Lesa meira]
Ellefu ára námuverkamaður
Otha Porter Martin, 11 ára, við vinnu sína í kolanámu í Vestur-Virginíu. Mynd eftir Lewis Hine, frá 1909. (Library of… [Lesa meira]
Gasgrímuklæddir fótboltamenn í fyrri heimsstyrjöldinni
Þessir bresku hermenn tóku sér frí frá skotgrafarhernaðinum í Norður-Frakklandi árið 1916 til að spila fótbolta. En þeir þurftu að nota gasgrímur. (Agence Rol/Wikimedia… [Lesa meira]
Verkakona í flugvélaverksmiðju árið 1942
Litmynd David Bransby sýnir konu sem starfaði í verksmiðju Vega Corp. í Burbank í Kaliforníu árið 1942 – í miðri seinni heimsstyrjöldinni. Í stríðinu tóku konur að sér störf sem áður höfðu eingöngu verið ætluð… [Lesa meira]
Troðfull lettnesk strönd, Sovétríkin á áttunda áratugnum
Þetta er baðströnd við Riga, höfuðborg Lettlands. Myndina tók Valdemārs Upītis einhvern tímann á áttunda áratugnum. Byggingin til hliðar er veitingastaðurinn Sjávarperlan. Ströndin, sem liggur við Eystrasaltið, var einn vinsælasti áfangastaðurinn yfir sumartímann í… [Lesa meira]