Mynd frá 1888. (The Burns… [Lesa meira]
Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.
Grand Central Terminal, New York, um 1940
Sólin flæðir inn um glugga aðalsalar járnbrautarstöðvarinnar Grand Central Terminal í New York. Myndin er tekin um 1935-1941. (NYC Municipal… [Lesa meira]
Gítarsmiðurinn með fjölskyldu sinni
Norsk-bandaríski gítarsmiðurinn Chris Knutsen með fjölskyldu sinni um 1900. Knutsen-hjónin halda bæði á svokölluðum … [Lesa meira]
Barn með vindil, 1855
Ungur drengur með vindil. Bandarísk daguerrotýpa frá um 1855. (Cleveland Museum of… [Lesa meira]
Nístingskuldi í Kattegat
Enska skipið SS Urania, sem sigldi á milli Hull og Helsinki, í fimbulkulda í Kattegat á milli Danmerkur og Svíþjóðar í janúar árið 1895. (Museums of Tyne &… [Lesa meira]
Bankaræninginn John Dillinger í réttarsalnum, 1934
Frægasti bankaræningi kreppuáranna í Bandaríkjunum, John Dillinger, með lögmönnum sínum í réttarsal í Indiana árið 1934. Johnny Depp fór með hlutverk Dillinger í kvikmyndinni Public Enemies frá 2009. (Wikimedia… [Lesa meira]
Pýramídinn klifinn
Evrópskur ferðamaður klífur Keops-pýramídann mikla í Egyptalandi, með umtalsverðri aðstoð innfæddra. Mynd tyrkneska ljósmyndarans Pascal Sebah, tekin um 1860-1880. (Library of Congress.)
Geldingarnir
Ítalski ljósmyndarinn Luigi Pesce tók þessa mynd af opinberum starfsmönnum með karakúl-ullarhatta fyrir utan mosku eina í Teheran í Íran, um 1850. Flestir mannanna eru skegglausir, sem bendir til þess að þeir hafi verið geldingar.
Geldingar sáu um rekstur kvennabúra Íranskeisara, og gátu náð langt innan hirðarinnar. Stofnandi Qajar-keisaraættarinnar sem réð ríkjum í Íran frá 1785 til 1925, Mohammad Khan Qajar,… [Lesa meira]
Manhattan, New York City, 1944
Loftmynd af Manhattan frá júlí 1944.
Upphaf mannsins
Margoft hefir vindurinn tekið fast í hurðarhúninn á Henderson Place borið Celiu boð frá einkennilegum stöðum
fyrir heppni í dag spratt hurðin opin og Celia hélt leiðar sinnar út í veður og vind
kemur eftir drykklanga stund í dýragarðinn í Bronx, mildur andvari hrærir blöðin á Seychelles eyjum
hér er upphaf mannsins og… [Lesa meira]
Stúlkan með bláa blóðið
Prinsessan og stórhertogaynjan af Mecklenburg-Schwerin, Alexandra Luise Marie Olga Elisabeth Therese Vera (Fædd í kastala í Gmunden í Austurríki-Ungverjalandi 29. september 1882, látin í kastala í Glücksburg, Vestur-Þýskalandi 30. ágúst 1963), gift Frederich Francis IV, stórhertoga af Mecklenburg-Schwerin, dóttir Ernest Augustus, krónprins af Hannover og Thyru prinessu af Danmörku, yngstu dóttur Kristjáns IX Danakonungs og Lovísu af Hesse-Kassel. Alexandra var… [Lesa meira]
Hafernir slást í Noregi
Margt leynist á Wikipediu. Hér sjáum við einvígi hafarna við vitann í Litley við Lófót í Noregi. Ljósmyndari Kjersti… [Lesa meira]
Stokkhólmur árið 1890
Horft yfir Stokkhólm í Svíþjóð. Ljósmyndarinn Carl Curman tók myndina úr Katarinahissen árið 1890. Myndin er svokölluð blágerð eða cyanotype.
„Uppgötvuð af Sir John Herschel í kjölfar þess að hann gerði sér grein fyrir ljósnæmiseiginleikum járnsalta. Pappír er burstaður með ljósnæmum efnum sem innihalda m.a. járnsölt og blátt litarefni. Hann er síðan þurrkaður í myrkri. Fyrirmyndin er því næst… [Lesa meira]
…