Myndaalbúm Lemúrsins geymir forvitnilegar ljósmyndir úr sögunnar rás. Flestar myndirnar eru frá opinberum stofnunum eða söfnum.

Forth Bridge í Skotlandi, árið 1896

Þessi ljósmynd sýnir Forth Bridge, svifbyggða járnbrautarbrú sem tengir Edinborg við borgina Fife yfir Firth of Forth. Brúarsmíðin var verkfræðilegt þrekvirki sem fjögur þúsund verkamenn reistu á sjö árum og var opnuð árið 1890. Talið er að 97 hafi látið lífið við vinnuna. Myndina tók ókunnur ljósmyndari árið 1896. (National Galleries of… [Lesa meira]

Fyrsti Ronald McDonald

Spámaður skyndibitans, hamborgaratrúðurinn ljúfi Ronald McDonald, hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar á nærri fimm áratuga langri ævi. Þessi besti vinur barnanna kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1963 á McDonalds-stað í Washington DC og birtist síðan næstu tvö árin í sjónvarpsauglýsingum fyrir fyrirtækið. Fyrsti maðurinn sem lék Ronald McDonald hét Willard Scott og var mjög fjölhæfur; hann var veðurfréttamaður… [Lesa meira]

Skip á hvolfi í Chicagofljóti, 1915

Skipið Eastland á hvolfi í Chicagofljóti við Chicagoborg í Bandaríkjunum árið 1915. (U.S. National Archives and Records… [Lesa meira]

Málmdrasl á Mars

Þessa mynd tók Opportunity, könnunarjeppi NASA, á eyðilegum söndum Meridianihásléttunnar á Mars árið 2005. Á myndinni sjáum við hlíf sem jeppinn kastaði af sér við lendingu árið áður. Jarðneska málmdraslið á myndinni var þó ekki það sem vakti athygli vísindamanna á jörðu niðri, heldur grjóthnullungurinn til vinstri. Hann er úr þykku járni og nikkeli og er talinn vera ævaforn loftsteinn.… [Lesa meira]

Skoski hrúturinn MacGregor

Skoski hrúturinn MacGregor. Myndin er tekin ca. 1890. Ljósmyndari var Charles Reid. Eigandi hins snotra MacGregors var bóndinn James R. Dempster. (National Galleries of… [Lesa meira]

Í sundi í Laugardalnum árið 1909

Magnús Ólafsson ljósmyndari tók þessa mynd árið 1909. Hún sýnir sundkennslu í sundlaugunum í Laugardal. „Ingibjörg Brands sundkennari fylgist með stúlkunum ásamt fleiri konum,“ segir í lýsingu. (Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Wikimedia… [Lesa meira]

Flóðhestur í dýragarðinum í London árið 1852

Spænski greifinn Don Juan af Montizon tók þessa mynd af flóðhestinum Obaysch í dýragarðinum í London árið 1852. (The Royal… [Lesa meira]

Snigilhöllin í Feneyjum, 1850

Höllin Palazzo Contarini del Bovolo í Feneyjum á Ítalíu, myndin er líklega tekin á árunum 1850 til 1860. Ljósmyndari Carlo Ponti. (National Galleries of Scotland)

 

Byggingin var reist árið 1499, en hringstiginn heitir eftir feneyska orðinu fyrir snigil… [Lesa meira]

Keisarinn og Mikki Mús

Leiðtogi Japanska heimsveldisins og fyrrverandi Lifandi Guð, Híróhító Japanskeisari, heimsækir hér Disneyland í Los Angeles árið 1975. Að heimsókninni lokinni keypti keisarinn sér armbandsúr með ásjónu Mikka Músar, sem hann gekk síðan með fram til… [Lesa meira]

Berklaveikar konur í Istanbúl, um 1880

Þessi mynd var tekin einhvern tímann á árabilinu 1880 til 1893. Ljósmyndin sýnir berkladeild kvennasjúkrahúss í Hasköy í Istanbúl sem þá tilheyrði Ottóman-veldinu. Ljósmyndarinn var Abdullah Frères. (Library of… [Lesa meira]

Edinborg, 1860

Þessi ljósmynd, sem William Donaldson Clark tók í kringum árið 1860, sýnir Cowgate-bogann á George IV Bridge í Edinborg. (National Galleries of Scotland).

… [Lesa meira]

Lækjargata, ca. 1906

Magnús Ólafsson tók þessa mynd af miðbæ Reykjavíkur árið 1905, 1906 eða 1907. Hér horfum við vestur yfir Kvosina frá Bernhöftstorfu. (Ljósmyndasafn… [Lesa meira]