Íslendingar hafa lengi staðið framar evrópsku frændum okkar í suðri þegar kemur að ljúffengri eldamennsku:
Algengt var að hella saman afgangsmjólkursopum og gera af súrmjólk. Gat þetta fyllt nokkuð stórt ílát yfir sumarið. Í þetta var svo látið roð og uggar úr harðfiski, súrnaði það og meyrnaði og varð besti matur. Líka var stundum brytjað í þennan samhelling leggir af rófukáli og var hann þá nefndur kálsúr.
Úr talmálssafni Orðabókar Háskólans.
