Pennavinur blakkmetal-morðingja á Íslandi: „Hann skipar mér að gera Ísland heiðið á ný“

Lemúrinn rifjaði upp söguna af Varg Vikernes í norsku blakkmetalsveitinni Mayhem. En hann myrti Øystein Aarseth, félaga sinn úr hljómsveitinni í ágúst 1993. Stakk hann 23 sinnum. Nú hefur bassa­leik­ar­inn, „Grishnackh greifi“, öðru nafni Varg Vikernes, kom­ist aftur í fréttir en hann hefur verið hand­tek­inn í Frakklandi grun­aður um að skipu­leggja hryðjuverk. Árið 1994 birtist í Pressunni umfjöllun Dr. Gunna… [Lesa meira]

Morð og metall í Noregi: Þegar bassaleikarinn myrti gítarleikarann

Þann 10. ágúst árið 1993 var Norðmaðurinn Øystein Aarseth stunginn 23 sinnum — tvisvar í höfuðið, fimm sinnum í hálsinn og sextán sinnum í bakið — fyrir utan íbúð sína í Osló. Øystein, 25 ára gamall, var betur þekktur undir nafninu „Euronymous“ og var gítarleikari í Mayhem, einni fremstu blakkmetal-hljómsveit Noregs.

 

Og morðinginn var bassaleikarinn, „Grishnackh greifi“, öðru nafni Varg Vikernes,… [Lesa meira]

„Augu aldarinnar“: Buenos Aires með augum meistarans Horacio Coppola

Hvaða borg er þetta? Á sumum myndum minnir hún á Gotham, borg Batman, á öðrum á París. Ljósmyndarinn Horacio Coppola tók myndirnar sem við sjáum hér í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, árið 1936. Þær þykja í dag einar merkustu perlur argentínskrar ljósmyndasögu.

 

Horacio Coppola fæddist árið 1906 í Buenos Aires. Hann var sonur ítalskra innflytjenda. Á unglingsárunum fiktaði hann við myndavélar… [Lesa meira]

Sparks-sirkusinn og fíllinn í járnbrautarkrananum

Farandsýningar voru vinsælar alþýðuskemmtanir í Bandaríkjunum allt frá seinni hluta nítjándu aldar fram að kreppunni miklu. Stórir sirkusar á borð við Barnum & Bailey og Hagenbeck-Wallace-sirkusinn ferðuðust með járnbrautum milli bæja og skemmtu fyrir fullum dyrum. Saga okkar hefst þann 12. september 1916 þegar Sparks-sirkusinn kom til Kingsport í Tennessee í Bandaríkjunum.

 

Tímabilið 1890 til 1920 hefur verið nefnt tímabil framsóknar… [Lesa meira]

Protected: The Foods of the Future — as Represented in the Past and Present

This content is password-protected. To view it, please enter the password below.

Password: … [Lesa meira]

Þegar Stallone vann Kalda stríðið

Í mars árið 1985 tók Mikhaíl Gorbatsjov við embætti aðalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna. Arfleifð hans er fyrst og fremst stefna sem bar lykilorðin “glasnost” (gagnsæi) og “perestrojka” (enduruppbygging). Sú stefna lagði nokkurn veginn grunninn að falli Sovétríkjanna og endalokum Kalda stríðsins. Eða hvað?

 

Stefnan var ekki komin í gagnið þegar kvikmyndin Rocky IV var frumsýnd í nóvember árið 1985. Þar má sjá… [Lesa meira]