Lemúrinn fjallar um dularfullar bækur. Meðal annars djöflabiblíu, Voynich-handritið, aldagamla bók á dulmáli sem enginn skilur og sjöhundruð milljón dala kálfskinnsskruddu.
Header: Útvarp Lemúr
Útvarp Lemúr geymir útvarpsþætti Lemúrsins hjá RÚV og hlaðvarpsþætti hjá Kjarnanum. Hér má finna alla þættina á einum stað, en þeir fjalla um nánast allt milli himins og jarðar!

Umsjónarmenn eru ritstjórn Lemúrsins. Fyrsta þáttaröðin, sem var dagskrá á Rás 1, fékk fimm stjörnur í umfjöllun DV. Sumarið 2014 var Leðurblakan á dagskrá á Rás 1, en hún var einnig á vegum Lemúrsins. Loks gerði Lemúrinn hlaðvarpsþætti fyrir Kjarnann 2015.
Vera Illugadóttir, einn af ritstjórum Lemúrsins, heldur svo úti þáttunum Í ljósi sögunnar á RÚV.

Hvað er í útvarpinu?
-
1. þáttur: Sauðnaut, lemúrar og furðuverur Borgesar
-
Leðurblakan, 16. þáttur: Líkið í álminum
-
2. þáttur: Vonbrigði nasista á Íslandi, Fordlândia og hið dularfulla land Lemúría
-
Leðurblakan, 12. þáttur: Morðið við Refaturninn
-
Lemúrinn hjá Kjarnanum, 2. þáttur: Kólumbíska morðkærastan og svikulasti biskup Íslands