Spreepark var stór skemmtigarður í útjaðri Berlínar sem var stofnaður um 1970 í Austur-Þýskalandi. Hann var eini skemmtigarðurinn þar í landi. Eftir fall múrsins stækkaði garðurinn ört enda gátu gestir nú streymt að úr öllum áttum. En mikil fjármálaóreiða og eyðsla í rekstri endaði með gjaldþroti Spreepark árið 2001.

 

Júlía Björnsdóttir og Þórir Ingvarsson fóru á dögunum í skoðunarferð í Spreepark, sem nú er líkastur draugabæ. Þau gáfu Lemúrnum góðfúslegt leyfi til að birta myndir þeirra úr þessum einstaka göngutúr.

 

Þau skrifa: „Við fórum um daginn í leiðsögn um hinn fornfræga skemmtigarð Spreepark. Garðurinn fór á hausinn árið 2001 og hefur drabbast niður síðan. Dóttir eigandans sá um túrinn, en fjölskylda hennar var vægast sagt í sviðsljósinu á sínum tíma. Pabbi hennar og bróðir áformuðu að bjarga fjárhagnum með því að smygla smá kókaíni til Þýskalands (167kg) inni í skemmtitæki sem hann var að flytja inn frá Perú. Það fór allt mjög illa og þeir feðgar sitja í fangelsi, faðirinn í Þýskalandi og sonurinn í Perú.“

 

„Dóttirin sem sá um gönguferðina dregur ekkert undan og er til í að svara öllum spurningum um garðinn og fjölskylduna. Afar áhugavert í alla staði.“

 

IMG_2838_small

Risaeðlur á víð og dreif.

IMG_2839_small

Svanabátarnir eru að sökkva í leðjuna.

spreepark1

Allstaðar sést parísarhjólið. ©Júlía Björnsdóttir

IMG_2207

©Júlía Björnsdóttir

IMG_2815_small

Tómir bátar í vatnsrússíbananum.

IMG_2817_small

Skógurinn að taka yfir.

IMG_2821_small

Öll mannvirkin eru að drabbast niður. Hér er inngangur í einn rússíbanann.

IMG_2830_small

Rússíbanarnir eru að hverfa í gróðurinn.

IMG_2126

Þessir tveir félagar voru við inngang garðsins og manni kom vissulega tímaflakk í hug. ©Júlía Björnsdóttir

IMG_2150

©Júlía Björnsdóttir

IMG_2189

Svona líta vagnarnir út þegar að Parísarhjólinu er komið. Leiðsögumaðurinn sagðist ekki þora að setjast í þá og þá væru virkilega eitthvað að. Hún sagði okkur nefnilega líka að þessi stórmerkilega fjölskylda hefði alltaf prófað öll ný tæki í garðinum áður en að eftirlitsmennirnir hefðu komið nálægt þeim til að öryggisvotta þau. ©Júlía Björnsdóttir

IMG_2198

Engar raðir síðan 2001. ©Júlía Björnsdóttir

IMG_2209

Svona líta flest mannvirkin út í Spreepark. ©Júlía Björnsdóttir

IMG_2813_small

Þetta er víst stærsti og jafnframt dýrasti vatnsrússíbani í Evrópu. Skemmtileg en slæm ákvörðun að byggja hann segir leiðsögumaðurinn.

IMG_2835_small

Parísarhjólið sést víða að. Það snýst stundum þegar það er mikill vindur, en vagnarnir eru víst að ryðga í sundur og því ekki öruggt að setjast uppí þá.