Ljósmyndatæknin, sem kom til sögunnar á nítjándu öld, veitir okkur frábæra innsýn í lífið á hverjum tíma.
Allir Íslendingar sem upplifðu nítjándu öldina eru nú fallnir frá og því verðum við nútímamenn að notast við sögulegar heimildir til að skilja og átta okkur á þeim annars gleymda tíma.
Ljósmyndir eru þar auðvitað einstaklega mikilvægar, ekki síst mannamyndir.
Gallinn er sá að á nítjándu öld voru það fyrst og fremst efnaðir einstaklingar sem voru myndaðir, sem þýðir að aðeins brotabrot af fólkinu er til á ljósmynd.
Hér sjáum við andlit íslenskra karla sem allir sátu á Alþingi á nítjándu öld.
Alþingi lá í dvala frá árinu 1800 þangað til það var endurreist árið 1843 eftir mikla baráttu sjálfstæðishreyfingarinnar íslensku.
Alþingi starfaði fyrst um sinn í húsi Latínuskólans, sem nú heitir Menntaskólinn í Reykjavík. Fram til 1874, þegar Danakonungur afhenti Íslendingum stjórnarskrá, var hið endurreista Alþingi aðeins ráðgjafarþing sem fór ekki með löggjafarvald, heldur veitti konungi ráðgjöf um stjórn landsins.
Á vef Alþingis eru myndir af flestöllum þingmönnunum sem sátu á Alþingi á því tímabili og hér birtast þeir í stafrófsröð. Sviðið hér er mjög stórt. Mennirnir voru fæddir á ólíkum tímum, sumir á átjándu öld, og myndirnar voru teknar á ólíkum tímabilum. Hér er ekki sögð ævisaga hvers og eins, en hægt er að lesa sér til um mennina á vef Alþingis.
Hefur útlit Íslendinga breyst frá því þessar ljósmyndir voru teknar? Eða eru þetta sömu andlitin í öðrum búningum?
Einu sinni lýsti Halldór Laxness andliti manns með þessum orðum: „hjálmfagurt, með loðnum brúnum, hrikalegum kinnbeinum, arnarnefi og samanbitnum munnsvip, […] ferlegt eins og sjálf hin þverhníptu klettabelti, sem gnæfa yfir ysta hafi heimsins, hefðu feingið lausn í þessari mannlegu ásjónu.“
Hvernig mynduð þið lýsa andlitunum sem birtast hér?
![Arnljótur Ólafsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Arnljótur-Ólafsson.jpg)
Arnljótur Ólafsson. F. á Auðólfsstöðum í Langadal 21. nóv. 1823, d. 29. okt. 1904.
![Árni Böðvarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Árni-Böðvarsson.jpg)
Árni Böðvarsson. F. á Görðum í Önundarfirði (skírður 24. okt.) 1818, d. 25. apríl 1889.
![Árni Einarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Árni-Einarsson.jpg)
Árni Einarsson. F. á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 12. júní 1824, d. 19. febr. 1899.
![Ásgeir Einarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Ásgeir-Einarsson.jpg)
Ásgeir Einarsson. F. í Kollafjarðarnesi 23. júlí 1809, d. 15. nóv. 1885.
![Benedikt Sveinsson.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Benedikt.jpg)
Benedikt Sveinsson. F. á Sandfelli í Öræfum 20. jan. 1826 (mun þó sjálfur hafa talið fæðingarár sitt 1827), d. 2. ágúst 1899.
![Bergur Thorberg](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Bergur-Thorberg.jpg)
Bergur Thorberg. F. á Hvanneyri í Siglufirði 23. jan. 1829, d. 21. jan. 1886.
![Bjarni Johnsen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Bjarni-Johnsen.jpg)
Bjarni Johnsen. F. á Bessastöðum á Álftanesi 11. ágúst 1809, d. 21. sept. 1868.
![Bjarni Thorsteinsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Bjarni-Thorsteinsson.jpg)
Bjarni Thorsteinsson. F. á Sauðhúsnesi í Álftaveri 31. mars 1781, d. 3. nóv. 1876.
![Björn Halldórsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Björn-Halldórsson.jpg)
Björn Halldórsson. F. í Skarði í Dalsmynni 4. nóv. 1823, d. 19. des. 1882.
![Björn Jónsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Björn-Jónsson.jpg)
Björn Jónsson. F. á Hólum í Hjaltadal 14. maí 1802, d. 20. júní 1886.
![Björn Pétursson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Björn-Pétursson.jpg)
Björn Pétursson. F. á Eiðum 2. ágúst 1826, d. í Winnipeg 25. sept. 1893.
- Daníel Thorlacius. F. í Stykkishólmi 8. maí 1828, d. 31. ágúst 1904.
![Davíð Guðmundsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Davíð-Guðmundsson.jpg)
Davíð Guðmundsson. F. á Vindhæli á Skagaströnd 15. júní 1834, d. 27. sept. 1905.
![Eggert Briem](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Eggert-Briem.jpg)
Eggert Briem. F. á Kjarna í Eyjafirði 15. okt. 1811, d. 11. mars 1894.
![Egill Egilsson.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Egill-Egilsson.jpg)
Egill Egilsson. F. á Bessastöðum á Álftanesi 8. júlí 1829, d. 14. jan. 1896.
![Eiríkur Ó Kúld](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Eiríkur-Ó-Kúld.jpg)
Eiríkur Ó. Kúld. F. í Flatey á Breiðafirði 12. júní 1822, d. 19. júlí 1893.
![Gísli Brynjúlfsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Gísli-Brynjúlfsson.jpg)
Gísli Brynjúlfsson. F. á Hólmum í Reyðarfirði 3. sept. 1827, d. 29. maí 1888.
![Grímur Thomsen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Grímur-Thomsen.jpg)
Grímur Thomsen. F. á Bessastöðum á Álftanesi 15. maí 1820, d. 27. nóv. 1896.
![Guðmundur Einarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Guðmundur-Einarsson.jpg)
Guðmundur Einarsson. F. í Skáleyjum 25. (kb. 27.) mars 1816, d. 31. okt. 1882.
![Halldór Jónsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Halldór-Jónsson.jpg)
Halldór Jónsson. F. á Ytrahóli á Skagaströnd 25. febr. 1810, d. 17. júlí 1881.
![Halldór Kr. Friðriksson.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Halldór-Kr.-Friðriksson.jpg)
Halldór Kr. Friðriksson. F. á Stað í Grunnavík 19. eða 27. nóv. 1819, d. 23. mars 1902.
![Hallgrímur Jónsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Hallgrímur-Jónsson.jpg)
Hallgrímur Jónsson. F. á Húsavík við Skjálfanda 16. ágúst 1811, d. 5. jan. 1880.
![Hallgrímur Jónsson2](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Hallgrímur-Jónsson2.jpg)
Hallgrímur Jónsson. F. að Ási í Melasveit 19. nóv. 1826, d. 18. jan. 1906.
![Hannes Stephensen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Hannes-Stephensen.jpg)
Hannes Stephensen. F. á Hvanneyri í Borgarfirði 12. okt. 1799, d. 29. sept. 1856.
![Helgi Hálfdánarson.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Helgi-Hálfdánarson.jpg)
Helgi Hálfdánarson. F. að Rúgsstöðum í Eyjafirði 19. ágúst 1826, d. 2. jan. 1894.
![Helgi Thordersen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Helgi-Thordersen.jpg)
Helgi Thordersen. F. á Arnarhóli í Reykjavík 7. apríl 1794, d. 4. des. 1867.
![Hjálmur Pétursson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Hjálmur-Pétursson.jpg)
Hjálmur Pétursson. F. á Sigmundarstöðum í Þverárhlíð 23. des. 1827, d. 5. maí 1898.
![Jakob Guðmundsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jakob-Guðmundsson.jpg)
Jakob Guðmundsson. F. á Reynistað í Skagafirði 2. eða 10. júní 1817, d. 7. maí 1890.
![Jens Sigurðsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jens-Sigurðsson.jpg)
Jens Sigurðsson. F. á Hrafnseyri við Arnarfjörð 6. júlí 1813, d. 2. nóv. 1872.
![Jóhann Briem](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jóhann-Briem.jpg)
Jóhann Briem. F. á Kjarna í Eyjafirði 7. ágúst 1818, d. 18. apríl 1894.
![Jón Bjarnason](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Bjarnason.jpg)
Jón Bjarnason. F. á Hraunum í Fljótum 4. jan. 1807, d. 1. mars 1892.
![Jón Guðmundsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Guðmundsson.jpg)
Jón Guðmundsson. F. í Melshúsum í Reykjavík 10. (kb. 15.) des. 1807, d. 31. maí 1875.
![Jón Hávarðsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Hávarðsson.jpg)
Jón Hávarðsson. F. á Hólum í Norðfirði 10. ágúst 1800, d. 5. mars 1881.
![Jón Hjaltalín](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Hjaltalín.jpg)
Jón Hjaltalín. F. í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 27. apríl 1807, d. 8. júní 1882.
![Jón Johnsen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Johnsen.jpg)
Jón Johnsen. F. á Drumboddsstöðum í Biskupstungum 24. febr. 1806, d. 7. júlí 1881.
![Jón Jónsson í Vík](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Jónsson-í-Vík.jpg)
Jón Jónsson í Vík. F. í Kalmanstungu 30. júlí 1830, d. 28. apríl 1878.
![Jón Pétursson.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Pétursson.jpg)
Jón Pétursson. F. á Víðivöllum í Blönduhlíð 16. jan. 1812, d. 16. jan. 1896.
![Jón Sigurðsson á Gautlöndum](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Sigurðsson-á-Gautlöndum.jpg)
Jón Sigurðsson á Gautlöndum. F. á Gautlöndum í Mývatnssveit 11. maí 1828, d. 26. júní 1889 í Bakkaseli í Öxnadal á leið til þings.
![Jón Sigurðsson forseti](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jón-Sigurðsson-forseti.jpg)
Jón Sigurðsson forseti. F. á Hrafnseyri við Arnarfjörð 17. júní 1811, d. 7. des. 1879.
![Jósep Skaftason](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Jósep-Skaftason.jpg)
Jósep Skaftason. F. á Skeggjastöðum á Langanesströnd 28. maí 1802, d. 30. júní 1875.
![Kristján Kristjánsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Kristján-Kristjánsson.jpg)
Kristján Kristjánsson. F. á Þórðarstöðum í Fnjóskadal 21. sept. 1806, d. 13. maí 1882.
![Ólafur Johnsen.](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Ólafur-Johnsen.jpg)
Ólafur Johnsen. F. í Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi 8. jan. 1809, d. 17. apríl 1885.
![Ólafur Pálsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Ólafur-Pálsson.jpg)
Ólafur Pálsson. F. í Ásum í Skaftártungu 7. ágúst 1814, d. 4. ágúst 1876.
![Ólafur Sigurðsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Ólafur-Sigurðsson.jpg)
Ólafur Sigurðsson. F. í Ási í Hegranesi 19. sept. 1822, d. 11. júlí 1908.
![Páll Melsteð](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Páll-Melsteð.jpg)
Páll Melsteð. F. á Möðruvöllum í Hörgárdal 13. nóv. 1812, d. 9. febr. 1910.
![Páll Ólafsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Páll-Ólafsson1.jpg)
Páll Ólafsson. F. á Dvergasteini 8. mars 1827, d. 23. des. 1905.
![Páll J Vídalín](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Páll-J-Vídalín.jpg)
Páll J Vídalín. F. í Víðidalstungu 3. mars 1827, d. 20. okt. 1873.
![Pétur Guðjohnsen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Pétur-Guðjohnsen.jpg)
Pétur Guðjohnsen. F. á Hrafnagili í Eyjafirði 29. nóv. 1812, d. 25. ágúst 1877
![Pétur Havsteen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Pétur-Havsteen.jpg)
Pétur Havsteen. F. á Hofsósi 17. febr. 1812, d. 24. júní 1875.
![Pétur Pétursson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Pétur-Pétursson.jpg)
Pétur Pétursson. F. á Miklabæ í Blönduhlíð 3. okt. 1808, d. 15. maí 1891.
![Sighvatur Árnason](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Sighvatur-Árnason.jpg)
Sighvatur Árnason. F. í Ysta-Skála undir Eyjafjöllum 29. nóv. 1823, d. 20. júlí 1911.
![Sigurður Gunnarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Sigurður-Gunnarsson.jpg)
Sigurður Gunnarsson. F. á Ærlæk í Öxarfirði 10. okt. 1812, d. 22. nóv. 1878.
![Sigurður Melsteð](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Sigurður-Melsteð.jpg)
Sigurður Melsteð. F. á Ketilsstöðum á Völlum 12. des. 1819, d. 20. maí 1895.
![Skúli Thorarensen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Skúli-Thorarensen.jpg)
Skúli Thorarensen. F. á Hlíðarenda í Fljótshlíð 28. mars 1805, d. 1. apríl 1872.
![Stefán Eiríksson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Stefán-Eiríksson.jpg)
Stefán Eiríksson. F. á Hoffelli í Nesjum 17. maí 1817, d. 12. sept. 1884.
![Stefán Jónsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Stefán-Jónsson.jpg)
Stefán Jónsson. F. á Hlöðum á Þelamörk 24. sept. 1802, d. 11. okt. 1890.
![Stefán Thordersen](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Stefán-Thordersen.jpg)
Stefán Thordersen. F. í Odda á Rangárvöllum 5. júní 1829, d. 3. apríl 1889.
![Sveinn Níelsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Sveinn-Níelsson.jpg)
Sveinn Níelsson. F. á Kleifum í Gilsfirði 14. ágúst 1801, d. 17. jan. 1881.
![Sveinn Skúlason](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Sveinn-Skúlason.jpg)
Sveinn Skúlason. F. á Efri-Þverá í Vesturhópi 12. júní 1824, d. 21. maí 1888.
![Torfi Einarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Torfi-Einarsson.jpg)
Torfi Einarsson. F. í Kollafjarðarnesi 25. des. 1812, d. 21. des. 1877.
![Tryggvi Gunnarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Tryggvi-Gunnarsson.jpg)
Tryggvi Gunnarsson. F. í Laufási við Eyjafjörð 18. okt. 1835, d. 21. okt. 1917.
![Þórarinn Böðvarsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Þórarinn-Böðvarsson.jpg)
Þórarinn Böðvarsson. F. í Gufudal 3. maí 1825, d. 6. maí 1895.
![Þórarinn Kristjánsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Þórarinn-Kristjánsson.jpg)
Þórarinn Kristjánsson. F. á Þönglabakka 8. nóv. 1816, d. 10. sept. 1883.
![Þórður Guðmundsson](http://lemurinn.is/wp-content/uploads/Þórður-Guðmundsson.jpg)
Þórður Guðmundsson. F. í Arnardal við Ísafjarðardjúp 11. apríl 1811, d. 19. ágúst 1892.