Í persneska hetjukvæðinu Shahnameh (Konungabókin) segir meðal annars frá konunginum Kay Kavus. Hans helsta afrek á konungsstóli var að smíða flugvél. Flugvélin samanstóð af gullnu hásæti í hvert voru fest fjórar stangir. Á stöngunum dingluðu stærðarinnar kjötlæri. Sérþjálfaðir ernir voru síðan beislaðir við hásætið og þegar þeir svo reyndu að fljúga upp og glefsa í kjötlærin tókst hásætið á loft. Á þennan máta gat Kay Kavus flogið til Kína, en þegar þangað var komið voru ernirnir örmagna og fljúgandi hásætið brotlendi.
Langtíburtistan er blogg um menningu og málefni Arabaheimsins, Miðausturlanda og nágrenni þeirra. Umsjónarmaður bloggsins er Vera Illugadóttir.