Fólk við Moskva basseyn, sundlaugina í Moskvu, 1965.  Á árunum 1960 til 1994 gátu Moskvubúar státað sig af stærstu útisundlaug heims.  Lemúrinn hefur áður fjallað í löngu máli um tilkomu laugarinnar, sem stóð á grunni Dómkirkju Krists frelsara, en það var stærsta rétttrúnaðarkirkjubygging heims þar til bolsévikar sprengdu hana í loft upp.