Árið 1995 framkvæmdi NASA, geimvísindastofnun Bandaríkjanna, nokkrar vísindatilraunir á eitrunaráhrifum ýmissa efna á köngulær. Litlu magni af viðkomandi efni var sprautað inn í dauða flugu og köngulóin fékk síðan að snæða á henni.

 

Að því loknu var köngulóin sett í afmarkað rými, þar sem hún spann vef, og síðan var reynt að ráða fram úr áhrifum efnisins á út frá eiginleikum vefsins.

 

Samkvæmt rannsóknargreininni frá 1995 var það markmið þessarar furðulegu rannsóknar að athuga hvort eiturlyfjaprufur á köngulær gætu að einhverju leyti komið í stað tilrauna á stærri dýrum. Ekki er vitað til þess að tilraunirnar hafi reynst á nokkurn hátt gagnlegar eða leitt af sér frekari uppgötvanir.

 

Venjulegur vefur þegar köngulóin er ekki undir áhrifum neinna efna.

 

Vefur spunninn undir áhrifum LSD.

 

Vefur gerður undir áhrifum ofskynjunarefnisins meskalíns (úr peyote-kaktus).

 

Vefur gerður af könguló undir áhrifum THC (virka efnisins í kannabis).  Ekki er hægt að segja annað en að vefurinn sé í besta falli letilegur.

 

Kaffín-vefurinn er skelfilegur, og virðist það lyf hafa haft einna verstu áhrif á gæði vefsins sem köngulær spinna.

 

Vefur spunninn undir áhrifum bensedríns (spítts).

 

Köngulóin sem fékk klóralhýdrat (svefnlyf) stóð sig mjög illa og spann ekkert sérlega tilkomumikinn vef.

 

Forsíðan á greininni ,,Using spider-web patterns to determine toxicity.“ (1995)

Heimild:  Noever, R., J. Cronise, og R. A. Relwani. 1995. Using spider-web patterns to determine toxicity  [Kóngulóarvefir notaðir til þess að ákvarða eituráhrif]. NASA Tech Briefs 19(4):82. Birtist í New Scientist, 27. apríl 1995.