Það er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu.

 

Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hvassviðri og svo mikið frost að enginn flugvél getur lent þar.

 

Þeir vísindamenn sem þar dvelja yfir vetrartímann búa í því algerri einangrun og kolniðamyrkri mánuðum saman, og eiga sér engrar undankomu auðið.

 

Það var eina slíka eilífa vetrarnótt sem dularfullt dauðsfall átti sér stað í Amundsen-Scott-rannsóknarstöðinni.