Lorenz Stöer var teiknari sem bjó í Nürnberg á 16. öld. Hann skildi eftir sig merkilega kennslubók sem út kom um 1567. ‘Geometria et Perspectiva’ inniheldur 11 tréskurðarmyndir sem ætlaðar voru sem sýnidæmi fyrir listamenn sem stunduðu skreytingar á byggingum og húsgögnum. Teikningarnar eru undarlega nútímalegar og sýna draumkenndar senur þar sem rúmfræðileg form birtast innan um rústir fornra bygginga.

Frekari upplýsingar um þessa heillandi bók má finna í grein eftir listfræðinginn Christopher S. Wood.

via publicdomainreview